Bæjarstjóri Hornafjarðar segir nýjan vegkafla Hringvegarins yfir Hornafjarðarfljót stuðla að bættu aðgengi fyrir íbúa sveitarfélagsins. Enn eigi þó eftir að koma til móts við íbúa sem lýst hafa yfir áhyggjum af fyrirhuguðu veggjaldi.Opnað verður fyrir vegkaflann með formlegum hætti á nýrri brú yfir Hornafjarðarfljót í næstu viku. Með honum styttist Hringvegurinn um tólf kílómetra en leiðin til Hafnar styttist um 14,6 kílómetra.Hjalti Þór Vignisson tók við starfi bæjarstóra í maí. Hann segir veginn, sem á sér langan aðdraganda, vera mikla samgöngubót fyrir sveitarfélagið.„Fyrstu hugmyndirnar komu fram fyrir aldamót og þá í tengslum við sameiningu sveitarfélaganna hérna í Austur-Skaftafellssýslu. Þessi vegur er í raun og veru hugsaður ekki síst til að bæta samgöngur innan sveitarfélagsins he