Lögreglumaður í Mississippi skaut hinn eins árs gamla Kohen Kartier Wiley til bana á sunnudaginn síðasta, þann fjórtánda júní. Wiley hafði verið í verslun Walmart ásamt móður sinni og frænku þegar skotið var á þau þar sem þau óku um bílastæðið á silfurlituðum fólksbíl. Lögregla segir í yfirlýsingu að þau hafi verið grunuð um búðarhnupl.