Fallega skreyttur blómabíll á ferð um götur Akureyrar markar gjarnan upphaf hátíðarhalda í bænum á 17. júní.Kristinn Örn Jónsson blómabílstjóri keyrir um bæinn í sjötta sinn í ár í bílnum sem fjölskylda hans á. Bíllinn er árgerð 1955 og var upphaflega í eign föður Kristins. Hann var kominn í bílakirkjugarð fyrir tíu árum síðan. Þá ákvað Kristinn, ásamt bræðrum sínum fjórum og þremur sonum þeirra, að gera hann upp.Kristinn segir blómabíl hafa keyrt um Akureyri þegar hann var barn. Það hafi þótt meiriháttar viðburður þar sem krakkar hópuðust um götur og hlupu á eftir honum.Í ár verður svipað upp á teningnum og geta Akureyringar séð bílinn sem stefnir á að keyra um öll hverfi Akureyrar í dag.