Halla Tómasdóttir forseti Íslands talaði um mikilvægi samvinnu og samtals á tímum óvissu í alþjóðamálum í hátíðarræðu á Austurvelli í morgun.Hún talaði um Ísland sem heimahöfn Íslendinga.„Hún er staðurinn sem við leggjum upp frá til að kanna ókunna stigu. Hún er staðurinn sem tekur á móti okkur með opnum örmum, hvernig sem við erum. Kannski er eitt mikilvægasta verkefni hverrar manneskju – og hverrar þjóðar – að styrkja sína heimahöfn.“Framundan bíði ákvarðanir um framtíð þjóðarinnar og forseti hvatti fólk til að hlusta á ólík sjónarmið og leita sameiginlegra lausna. Fólk geti verið ósammála án þess að verða óvinir.„Sjálfstæði þjóðar [...] er lifandi verkefni sem við berum sameiginlega ábyrgð á.“