Forstjóri Fjarskiptastofu segir að um sex þúsund símtæki á landsvísu gætu verið í þeirri stöðu að ná ekki í Neyðarlínuna undir ákveðnum kringumstæðum í kjölfar lokana fjarskiptafélaganna á 2G og 3G kerfum. Þetta séu helst eldri símar sem noti gömlu fjarskiptakerfin til að hringja neyðarsímtöl.