Ekki óeðlilegt að skiptar skoðarnir séu um brottvísunarstöð innan flokksins

Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra segist skilja að frumvarp um brottvísunarstöð sé flókið og erfitt mál. Þó hafi líklega enginn málaflokkur fengið jafn mikla umfjöllun á vettvangi flokksins og meðal grasrótar undanfarin misseri og útlendingamál.„Þetta hefur verið sett í það samhengi að það sé enginn fótur fyrir þessu í stefnu flokksins. Það liggur alveg fyrir að þetta frumvarp er neyðarúrræði. Þetta er neyðarúrræði þegar öll önnur tilmæli, allt annað hefur verið reynt,“ sagði Kristrún í Kastljósi í gær.Hópur 55 félaga í Samfylkingunni og óflokksbundins jafnaðarfólks mótmælti brottvísunarstöð í aðsendri grein á Vísi í síðustu viku og sagði ótækt að þingflokkur Samfylkingarinnar hafi samþykkt þessi lög. Kröpp hægri beygja hafi verið tekin – án umræðu á vettvangi flokksins.Kristrún segir
Ekki óeðlilegt að skiptar skoðarnir séu um brottvísunarstöð innan flokksins

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd