Leiðtogar G7-ríkjanna eru einhuga í stuðningi við Úkraínu, samkvæmt sameiginlegri yfirlýsingu. Einnig er kallað eftir tafarlausu vopnahléi í Líbanon og forseti Bandaríkjanna er mærður fyrir viljayfirlýsingu um frið við Íran.„Ég er stjórinn,“ sagði Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, og sló á létta strengi þegar hann mætti til fundar í morgun. Hann lét hina leiðtogana bíða aðeins eftir sér og mætti nærri klukkustund of seint.Leiðtogar G7-ríkjanna kalla eftir tafarlausu vopnahléi í Líbanon, mæra Bandaríkjaforseta fyrir viljayfirlýsingu um frið við Íran og eru einhuga um stuðning við Úkraínu. Bandaríkjaforseti hefur boðað sinn eigin blaðamannafund síðar í dag.En miðað við sameiginlega yfirlýsingu sem var birt í dag er einhugur meðal leiðtoganna um óhagganlegan stuðning við Úkraínu og að auka