Halla Tómasdóttir forseti Íslands fór um víðan völl í hátíðarræðu sinni á hátíðarstund lýðveldisins á Austurvelli í dag. Hún hafði meðal annars orð á því að styrkleikar Íslendinga væru mikilvægir á tímum átaka, umbreytinga og óvissu og að fram undan væru mikilvægar ákvarðanir um framtíð Íslands.