Hugmyndin um gráan 17. júní er ekki úr lausu lofti gripin. Þetta segir í yfirliti Veðurstofunnar um veður á þjóðhátíðardaginn.Tilfinning höfuðborgarbúa um að það rigni „alltaf“ á 17. júní er heldur engin ranghugmynd. Samkvæmt samantekt Þórs Jakobssonar veðurfræðings á Vísindavefnum rigndi á 17. júní í Reykjavík í 85 prósent tilvika á árunum 1944 til 2014.Þó að þjóðhátíðardagur Íslendinga sé nálægt sumarsólstöðum er hann ekki á hápunkti sólskins. Gögn Veðurstofunnar sýna þvert á móti að 17. júní lendi í tímabundinni lægð í sólskinsdögum.Langir sumardagar, það er þegar sólin skín í tíu klukkustundir eða meira, eru sjaldgæfari í kringum 17. júní en bæði fyrr á vori og síðar á sumri. Trausti Jónsson veðurfræðingur bendir á að meðalsólskinsstundafjöldi í höfuðborginni nái hámarki um 21. maí og