Manchester United hefur komið í veg fyrir að tveir stærstu erkifjendur félagsins geti virkjað ákvæði í samningi Marcus Rashford. Samkvæmt fréttum frá Englandi getur hvorki Liverpool né Manchester City nýtt sér 40 milljóna punda söluákvæði í samningi enska landsliðsmannsins, á meðan önnur félög geta gert það.