Sérsveitin aðstoðaði lögregluna á höfuðborgarsvæðinu í gærkvöldi og í nótt vegna tilkynningar sem þeim barst um að maður væri vopnaður hníf á hóteli í miðborg Reykjavíkur. Hann á að hafa verið að ógna öðrum manni en maðurinn var handtekinn og vistaður í fangaklefa.