Austurríkismenn unnu Jórdana 3-1 í J-riðli HM í fótbolta karla í leik þeirra sem fram fór í San Francisco í nótt. Austurríkismenn stimpluðu sig inn í leikinn með fyrsta marki Romano Schmid á 20. mínútu.Ali Olwan skoraði fyrir Jórdana á 50. mínútu og Yazan Alarab varð fyrir því óláni að skora sjálfsmark á 76. mínútu leiksins. Marko Arnautovic skoraði fyrir Austurríkismenn á 90. mínútu og 12. sekúndu og gulltryggði þar með sigur Austurríkismanna á Jórdönum.Argentína mætir Austurríki á mánudaginn og verður leikurinn sýndur á RÚV 2. Þá mætast Jórdanía og Alsír á þriðjudaginn.