Til skoðunar er í innviðaráðuneytinu að breyta reglugerð um ökuréttindi og má skilja á skriflegu svari aðstoðarmanns ráðherrans að stefnt sé að innleiðingu Evrópugerðar sem heimili ökumönnum með hefðbundin ökuréttindi að aka rafbílum sem eru allt að 4,25 tonn. Nú þarf meirapróf til þess. Aðgerðaleysi ráðherra í þessu máli hefur sætt gagnrýni.