KA tók á móti Fram á Greifavellinum á mánudagskvöld og endaði sá leikur með 3-4 útisigri gestanna úr Úlfarsárdalnum. KA komst í 2-1 en Fram svaraði með þremur mörkum og náði KA ekki að brúa það bil. Í stöðunni 1-1 skoraði KA mark sem var dæmt af en erfitt var að sjá af hverju. KA 3 - 4 Fram 0-1 Þorri Stefán Þorbjörnsson ('6 ) 1-1 Hallgrímur Mar Steingrímsson ('8 ) 2-1 Sveinn Margeir Hauksson ('18 ) 2-2 Atli Þór Jónasson ('34 ) 2-3 Atli Þór Jónasson ('42 ) 2-4 Freyr Sigurðsson ('63 ) 3-4 Jóan Símun Edmundsson ('84 )