Kostnaður við nýja viðbyggingu eða danssalar við Hvíta húsið er talinn nema allt að 600 milljónum dollara. Þar af mun yfir helmingur verða greiddur úr vösum skattgreiðenda samkvæmt umfjöllun The Washington Post um framkvæmdina.Donald Trump Bandaríkjaforseti hafði áður metið kostnaðinn upp á 400 milljónir dollara. Hann hefur margoft sagt að framkvæmdin sé fjármögnuð með einkaframlögum og af honum sjálfum.Washington Post vísaði í afrit af ítarlegri kostnaðaráætlun sem verktakinn sem sér um framkvæmdina gerði fyrir Bandaríkjastjórn. Gögn benda til að kostnaðurinn hafi aukist frá upphaflegum áætlunum.Hvíta húsið hafnar þessu en svarar ekki spurningum um kostnaðaráætlunina eða hversu hátt hlutfall yrði greitt úr vösum skattgreiðenda.Margir hafa gagnrýnt framkvæmdina og hvernig að henni hefur ve