Mark Bullingham, framkvæmdastjóri enska fótboltasambandsins, segir að ákvörðunin um að framlengja samning Thomas Tuchel, landsliðsþjálfara Englands, fyrir HM hafi verið tekin til að koma í veg fyrir að stór evrópsk félagslið freistuðu þess að ráða Þjóðverjann. Tuchel skrifaði undir nýjan samning í febrúar sem gildir til loka Evrópumótsins árið 2028. Samningurinn var undirritaður rúmu ári eftir að hann tók við enska landsliðinu og sex mánuðum áður en fyrri samningur hans átti að renna út.