Gleðilegan þjóðhátíðardag kæru lesendur. Það er ekkert frí í fótboltanum í dag. Það er spilað í Lengjudeild karla og þar eru þrír leikir á dagskrá. Tveir þeirra hefjast klukkan 14:00 og klukkan 15:00 verður flautað til leiks á Ísafirði. Í Mjólkurbikar kvenna eru tveir leikir í átta-liða úrslitum þar sem FHL mætir Fram og ÍBV spilar við FH í Vestmannaeyjum.