Lionel Messi átti stórleik með argentínska landsliðinu og skoraði þrennu á móti engu marki Alsíringa á Kansas City-leikvanginum í nótt.Fyrsta mark hans kom á 17. mínútu leiksins, það næsta eftir hálfleik á 60. mínútu og það þriðja kom á 76. mínútu. Þetta er fyrsta heimsmeistaramótsþrenna Messi, en hann hefur skorað alls 16 mörk fyrir argentínska landsliðið á heimsmeistaramótum.Argentína og Alsír eru í J-riðli mótsins. Hin liðin í riðlinum, Austurríki og Jórdanía, hófu sinn leik klukkan fjögur og er leikurinn sýndur á RÚV.