Alríkislögreglu Bandaríkjanna, FBI, tókst að koma í veg fyrir árás sem ráðgerð var á UFC-bardagakvöldinu sem haldið var á afmælisdegi Donalds Trumps Bandaríkjaforseta við Hvíta húsið á sunnudaginn. Kash Patel, forstjóri FBI, greindi frá þessu á X í gærkvöld. Upp komst um fyrirhugaða árás fjórum dögum fyrir viðburðinn.Í frétt breska ríkisútvarpsins BBC kemur fram að fimm menn hafi verið handteknir samkvæmt upplýsingum bandaríska dómsmálaráðuneytisins. Mennirnir ætluðu að gera árásir með sprengjudrónum og ráðast á mikilvæg skotmörk við Hvíta húsið og á háttsetta einstaklinga.Meðal þeirra sem mennirnir ætluðu að ráðast á voru Bandaríkjaforseti, JD Vance varaforseti, forsætisráðherra Ísraels Menjamin Netanyahu, billjónamæringurinn Elon Musk og fleiri háttsetta einstaklinga.Mennirnir ætluðu að