Tímamót hjá Lárusi Orra: Mikill uppgangur hjá félaginu

ÍA fengu Val í heimsókn upp á Skipaskaga í leik sem ÍA hafði góð tök á og eitt mark dugði til sigurs. Sanngjarn sigur þegar uppi var staðið. Þetta hafðist og er Lárus Orri sáttur við sína menn? „Já ég var mjög ánægður með þá í dag og þetta meira en hafðist og var bara nokkuð öruggur sigur þrátt fyrir að þetta hafi bara farið 1-0. Mér leið bara nokkuð vel allan tímann. Fyrstu 10-15 mínúturnar voru við að finna út úr því hvernig þeir ( Valur ) spiluðu, við vissum í raun ekki fyrir leikinn hvaða Valslið við værum að fá. Það tók smá tíma að finna út úr pressunni hjá þeim en eftir það var bara eitt lið á vellinum."
Tímamót hjá Lárusi Orra: Mikill uppgangur hjá félaginu

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd