Það verður seint sagt sóknarleikur Vals hér í kvöld hafi verið eftirminnilegur, heldur þvert á móti þá var auglýst eftir honum á mjólkurfernu. Valsmenn áttu einungis eitt skot á mark og voru ekki líklegir til að skora hér í kvöld. ÍA dugði því eitt mark til að fara með sigur af hólmi. Er Hemmi sammála því að sóknarleikur liðsins hafi ekki verið upp á marga fiska? „Já en við nýttum stöðurnar hrikalega illa. Við komumst í frábærar stöður og þá sérstaklega í fyrri hálfleik. Fjórum fimm sinnum þrír á tvo, tveir á einn jafnvel en síðasta sending klaufaleg. Þetta var 50-50 leikur og gríðarlega fúlt að fara ekki með neitt."