Lionel Messi er á sínum stað í byrjunarliði Argentínu sem mætir Alsír á HM núna klukkan 01:00 í nótt. Messi, sem mun í kvöld spila sinn 200. landsleik, byrjar fremstur með Lautaro Martinez, sóknarmanni Inter. Julian Alvarez er á bekknum. Lisandro Martinez byrjar þá við hlið Cristian Romero í hjarta varnarinnar.