Ýmsar upplýsingar er að finna í Epstein-skjölunum og fæstar þeirra mjög kræsilegar. Fyrir utan Jeffrey Epstein sjálfan kemur á óvart hvaða nafn kemur þar oftast fyrir. Það er ekki Donald Trump, Ghislaine Maxwell eða Andrew Mountbatten-Windsor, heldur nafn Lesley Groff, aðstoðarkonu hins dæmda kynferðisbrotamanns.