Viktor Jónsson framherji Skagamanna tryggði liði sínu 1-0 sigur gegn Val þegar hann skoraði eina mark leiksins á 40. mínútu og gott gengi ÍA heldur áfram sem hefur hirt 10 stig í síðustu fjórum leikjum í deildinni. Hvað fannst Viktori um leikinn? „Hann var erfiður vægast sagt, ég er alveg gjörsamlega sigraður. Þetta var einhver pressugeðveiki. Við vorum alla veganna að reyna það að setja þá ( Valur ) undir pressu. Gékk brösulega fyrstu 15 mínúturnar þar sem við vorum að telja vitlaust og reyna að finna út úr þessu. Eftir það vorum við mjög solid og ég man ekki eftir færi nema kannski einn skalli undir lokin."