Tobias Carlsson hefur ekki staðið undir væntingum hjá FH á þessu tímabili og var ekki í leikmannahópi liðsins þegar það vann sinn fyrsta deildarleik á tímabilinu gegn Keflavík síðasta sunnudag. Jóhannes Karl Guðjónsson, þjálfari FH, var spurður út í fjarveru Carlsson eftir leik og sagðist þá einfaldlega vilja sjá meira frá sænska varnarmanninum.