Víkingur er með sex stiga forystu á toppi Bestu deildarinnar eftir að liðið fór með 2-0 sigur af hólmi gegn KR fyrr í kvöld. Víkingur hefur nú unnið tíu deildarleiki í röð en Fótbolti.net ræddi við Gylfa Þór Sigurðsson, leikmann liðsins, eftir sigur kvöldsins. „Það var mjög mikilvægt að vinna liðið sem er í 2. sæti fyrir leikinn. En í enda dags eru þetta bara þrjú stig. Þó að við hefðum tapað leiknum eða gert jafntefli að þá er það mikið eftir af tímabilinu að það skiptir kannski ekki öllu máli. Á sama tíma eru þetta mjög góð úrslit.“