Hilmar Jökull Stefánsson, sem lengi hefur verið andlit stuðningsmanna Breiðabliks, skrifar í kvöld áhugaverðan pistil á Fésbókarsíðu sína. Það gerir hann eftir 4-4 jafntefli Blika gegn Stjörnunni en Kópavogsfélagið hefur ekki fundið mikinn stöðugleika í Bestu deildinni í sumar. Blikar eru eftir leikinn í kvöld í fjórða sæti, sjö stigum frá Fram sem er í þriðja sætinu.