Víkingur heldur toppsætinu og Jón Þór náði stigi

Þrír leikri voru í Bestu deild karla í kvöld. Jón Þór Hauksson stýrði Stjörnunni í sínum fyrsta leik með Stjörnunni. Um hörkuleik var að ræða því liðið mætti Breiðabliki og þar stóð ekki á markaskorun. Viktor Karl Einarsson kom Blikum í 1-0 og Aron Bjarnason fylgdi því eftir með tveimur mörkum og Breiðablik leiddi 3-0 eftir um hálftíma leik. Emil Atlason minnkaði svo muninn í 3-2 áður en hálfleiksflautið gall. Kristófer Ingi Kristinsson jók forskot gestanna í Breiðabliki á 54. mínútu, 4-2. Emil Atlason og Birnir Snær Ingason bættu þá hvor við sínu markinu og tryggðu Stjörnumönnum stig úr leiknum. VÍKINGUR ENN Á TOPPNUM Víkingar tóku á móti KR en liðin sátu hlið við hlið í deildinni, Víkingar á toppnum með 28 stig og KR í öðru með 25. Helgi Guðjónsson kom heimamönnum yfir á 40. mínútu og
Víkingur heldur toppsætinu og Jón Þór náði stigi

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd