Leikurinn fór fremur rólega af stað. Senegalska vörnin stóð þétt og Frakkar leituðu að götum. Agaður varnarleikur Senegal kom þeim langt og liðið hafði góð tök á leiknum.Það var annað að sjá til Frakkanna í seinni hálfleik og liðið kom sér í betri stöður. Það lá því í loftinu þegar Kylian Mbappe kom Frökkum yfir. Olise átti frábæra sendingu á Mbappe sem var vel staðsettur og þrumaði boltanum í netið.Bradley Barcola kom inn á fyrir Dembélé á 80. mínútu og hann jók forystu Frakka í 2-0 eftir að hafa verið inni á vellinum í tæpar tvær mínútur. Ibrahim Mbaye hélt von Senegal á lofti með marki á fimmtu mínútu uppbótartíma en Mbappe svaraði um hæl með þrumufleyg sem endaði í markinu, 3-1.Það urðu lokatölur og Frakkar höfðu sigur í leik sem sannarlega var leikur tveggja hálfleikja.