„Það er langt á milli þangað til menn ná saman“

Skriður er kominn á þunga deilu Icelandair og Félags íslenskra atvinnuflugmanna eftir fund þeirra hjá ríkissáttasemjara í dag. Samninganefndir hittust í morgun og á sjötta tímanum barst tilkynning frá Icelandair þar sem fram kom að félögin hefðu samþykkt tillögu ríkissáttasemjara um verkstýrða verkáætlun undir friðarskyldu. Jón Þór Þorvaldsson, formaður FÍA, segir viðræðurnar flóknar og umfangsmiklar.„Það er langt á milli þangað til menn ná saman. En svo er líka hægt að segja það hefur aldrei verið styttra,“ segir Jón Þór.
„Það er langt á milli þangað til menn ná saman“

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd