Frakkar ræstu vélina í seinni og sóttu sigur

Leikurinn fór fremur rólega af stað. Senegalska vörnin stóð þétt og Frakkar leituðu að götum. Agaður varnarleikur Senegal kom þeim langt og liðið náði stöku góðum færum.Senegal lauk fyrri hálfleik með dauðafæri Ismaila Sarr en boltinn rataði þó ekki í netið.Það var annað að sjá til Frakkanna í seinni hálfleik og liðið kom sér í betri stöður. Það lá því í loftinu þegar Kylian Mbappe kom Frökkum yfir. Olise átti frábæra sendingu á Mbappe sem var vel staðsettur og þrumaði boltanum í netið.Þá var orkan með Frökkum og bitið farið úr Senegal. Bradley Barcola kom inn á fyrir Dembélé á 80. mínútu og hann jók forystu Frakka í 2-0 eftir að hafa verið inni á vellinum í tæpar tvær mínútur. Hann slapp einn í gegn og skilaði boltanum í netið. Þetta er fjórða mark hans fyrir Frakkland. Barcola er 23 ára
Frakkar ræstu vélina í seinni og sóttu sigur

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd