Þverpólitískar ungliðahreyfingar stofna „Ung gegn ESB-aðild“

Ungliðahreyfingar fimm stjórnmálaflokka hafa tekið saman höndum og ætla að stofna félagið Ung gegn ESB-aðild. Formlegur stofnfundur félagsins verður á Hótel Borg á morgun klukkan 17. Greint er frá þessu í fréttatilkynningu.„Félagið er stofnað í samvinnu og að frumkvæði forystufólks og fyrrum forystufólks úr ungliðahreyfingum stjórnmálaflokka sem telja hagsmuni Íslands best borgið utan Evrópusambandsins. Það eru Samband ungra Sjálfstæðismanna (SUS), Samband ungra Framsóknarmanna (SUF), Ungliðahreyfing Miðflokksins, Ung Vinstri Græn (UVG) og Roði - Ungir Sósíalistar,“ segir í tilkynningunni.Á stofnfundinum verður lögð fram ályktun til samþykktar. Birgir Ármannsson, fyrrverandi forseti Alþingis, Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar og Steinþór Logi Arnarson, formaður Ungra bænda, halda
Þverpólitískar ungliðahreyfingar stofna „Ung gegn ESB-aðild“

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd