Á sama tíma og mörg Evrópuríki hafa hert stefnu gegn innflytjendum hafa Spánverjar farið í aðra átt og ætla að veita allt að hálfri milljón manna dvalarleyfi í landinu. Stjórnvöld segja betra að fólkið sé skráð, þá greiði það skatta og njóti réttinda á vinnumarkaði.Talið er að á Spáni séu um 850.000 óskráðir innflytjendur. Margir þeirra sinna umönnunarstörfum á einkareknum hjúkrunarheimilum, starfa í landbúnaði, við þrif eða í byggingarvinnu. Framlag innflytjenda er talið ein helsta ástæða þess að hagvöxtur á Spáni hefur verið meiri en að meðaltali í ríkjum ESB.Stjórnvöld á Spáni ætla að veita hálfri milljón innflytjenda dvalarleyfi. Skilyrðin eru að þeir hafi komið þangað fyrir síðustu áramót og séu með hreint sakavottorð. FÁ GREITT Í REIÐUFÉ OG NJÓTA EKKI SÖMU RÉTTINDA OG AÐRIR Spænsk