Borgarráð samþykkti í síðustu viku að segja upp samningi um tæplega fjögur þúsund fermetra svæði í Gufunesi undir nýja hjólhýsabyggð og ekki stendur til að finna byggðinni aðra lóð. Formaður borgarráðs segist ekki vilja að börn alist upp í hjólhýsagörðum í Reykjavík. „ALLIR VORU Í SJOKKI OG VORU REIÐIR“ Samningurinn var gerður við Samtök hjólabúa, félagasamtök þeirra sem vilja búa í húsbílum eða hjólhýsum, og undirritaður af fyrri borgarstjórn skömmu fyrir sveitarstjórnarkosningar. Samningurinn átti að tryggja 3900 fermetra svæði í Gufunesi til tveggja ára undir hjólhýsabyggð – en borgarráð samþykkti í síðustu viku að rifta honum.„Allir voru í sjokki og voru reiðir. Og sumir grátandi þess vegna líka,“ segir Lilja Karen Norðquist Jónsdóttir, íbúi í hjólhýsabyggðinni við Sævarhöfða.Einar