Newcastle United hefur sett 100 milljóna punda verðmiða á ítalska landsliðsmanninn Sandro Tonali. Samkvæmt The Times mun félagið ekki íhuga að selja miðjumanninn fyrir lægri upphæð, en Newcastle greiddi 55 milljónir punda fyrir hann þegar hann kom frá AC Milan sumarið 2023.