Landsliðskonan Diljá Ýr Zomers kom inn af bekknum eftir tæpan klukkutíma þegar Brann vann 0-2 sigur gegn Lyn í norsku bikarkeppninni í dag. Diljá byrjaði af bekknum en þegar hún kom inn á var staðan 0-1. Brenna Lovera, fyrrum leikmaður Selfoss, bætti við öðru marki Brann stuttu eftir innkomu Diljár.