Tónleikagestir verða að skilja regnhlífarnar eftir heima en ekki nestið

Tónleikagestir Bergmáls á Þingvöllum verða að skilja regnhlífarnar og tjaldstólana eftir heima. Það er að beiðni lögreglu en viðburðahaldari segir að ráðstafanir hafi verið gerðar til að tryggja að fólk geti hvílt sig á tónleikunum.Ákvörðunin var tekin sökum þess að stóla og regnhlífar er hægt að nota sem vopn eða barefli.„Við gerum því viðeigandi ráðstafanir til þess að forðast að slíkir hlutir rati inn á svæðið. Það er einnig sjónarmið að ef það kemur til þess að það þurfi að rýma svæðið með skömmum fyrirvara þá geta slíkir hlutir skapað hættu við þessar aðstæður,“ segir Íris Edda Heimisdóttir, aðalvarðstjóri hjá Lögreglunni á Suðurlandi.Von er á um 20 þúsund gestum á Þingvelli á laugardag.Lögregla tók ákvörðunina í samráði við bæði viðburðahaldara og þá sem sjá um gæslu á tónleikunum. Í
Tónleikagestir verða að skilja regnhlífarnar eftir heima en ekki nestið

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd