Álfrún Perla Baldursdóttir var nýlega ráðin alþjóðafulltrúi og verkefnastjóri hjá KLAK – Icelandic Startups. Hún mun hefja störf í ágúst þegar hún flytur heim frá Virginíu en þar hefur hún unnið sem fulltrúi Íslands gagnvart NATO-herstöðinni í Norfolk.