Gróðureldar brenna nú í Riverside-sýslu í Kaliforníu, vestan við Los Angeles. Eldarnir, sem kviknuðu í gær, hafa farið stækkandi og nú eru yfir 1000 hektarar lands brunnir.Fólk nærri eldunum var í gærkvöld hvatt til að yfirgefa heimili sín. Þá hefur þjóðvegi nr. 60 verið lokað þar sem hann liggur um svæðið. Ríflega 250 slökkviliðsmenn berjast við eldinn.Enn er ekki ljóst hvað olli eldinum.