Flytja alla starfsemi sjúkrahússins á Akureyri úr Kristnesi

Öll starfsemi sjúkrahússins á Akureyri á Kristnesspítala í Eyjafjarðarsveit hefur verið flutt úr húsnæðinu vegna myglu. Frá þessu er greint á Akureyri.net.Sjúkrahúsið á Akureyri hefur til þessa rekið endurhæfingar- og öldrunarlækningadeild á spítalanum en ljóst er eftir ítarlega greiningu á húsnæðinu að óhæft sé að reka starfsemi í húsnæðinu.Í byrjun marsmánaðar greindist mygla í húsnæði spítalans, en mygluvandinn hefur varpað ljósi á uppsafnaðan innviðavanda.Til stendur að koma dag- og göngudeildarhluta þjónustunnar fyrir í nýju 815 fermetra leiguhúsnæði á Akureyri. Samkvæmt áætlun mun starfsemi hefjast þar í september.Hægt verður að veita 20 skjólstæðingum þjónustu á dagdeild og göngudeild en sex legurými fyrir endurhæfingarsjúklinga verða tekin í notkun á skurðlækningadeild SAk í byrjun
Flytja alla starfsemi sjúkrahússins á Akureyri úr Kristnesi

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd