Alvarlegt umferðarslys varð á Vesturlandi á fjórða tímanum í dag þegar tveir bílar skullu saman á Hálsasveitarvegi í Borgarfirði. Þrír voru fluttir með þyrlu Landhelgisgæslunnar á Landspítalann í Fossvogi.Ásmundur Kristinn Ásmundsson, yfirlögregluþjónn á Vesturlandi, segir að klippa hafi þurft tvo út úr bílum eftir áreksturinn. Þeir voru í sitt hvorum bílnum en í öðrum þeirra var einn og í hinum farþegi og bílstjóri.Hann staðfestir að engin börn hafi verið í árekstrinum.Talsverður viðbúnaður er á vettvangi árekstursins. Þar eru til dæmis viðbragðsaðilar á borð við sjúkraliða og lögreglu ásamt rannsakendum frá Lögreglunni á Vesturlandi og frá rannsóknarnefnd samgönguslysa, að auki við rannsakendur sem koma frá tæknideild Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu.Ásmundur segir að helsta leiðin frá