Í dag undirrituðu Icelandair og Félag íslenskra atvinnuflugmanna (FÍA) sameiginlega yfirlýsingu um framhald kjarasamningsviðræðna. Þetta kemur fram í tilkynningy Icelandair. Þar segir að bæði Icelandair og FÍA hafi samþykkt tillögu ríkissáttasemjara að verkstýrðri verkáætlun undir friðarskyldu. Unnið verði eftir henni þar til samningum er náð með það sem meginmarkmið að ljúka viðræðum um endurnýjun kjarasamnings fyrir 15. september 2026. Félögin hafa sammælst um að vinna saman í góðri trú að framgangi viðræðna og stuðla að uppbyggingu gagnkvæms trausts sín á milli. Á meðan á samningaviðræðum stendur skuldbinda aðilar sig til að standa saman að baki Icelandair, með það að markmiði að tryggja stöðugan og öruggan rekstur félagsins og vernda hagsmuni þess. „Aðilar eru sammála um að flugmenn, s