Þyrla Landhelgisgæslunnar sótti þrjá vegna umferðarslyss í Reykholti á fjórða tímanum. Ásgeir Erlendsson, upplýsingafulltrúi Landhelgisgæslunnar, staðfestir þetta.Beiðni um þyrlu Gæslunnar barst um 20 mínútur yfir 15 og var óskað eftir að hún yrði kölluð út með mesta forgangi. Hún lenti í Reykjavík fyrir um hálftíma síðan.Fréttin verður uppfærð.