Hildur Björnsdóttir borgarstjóri segir að stefnt sé að því að leggja mannréttindaráð borgarinnar niður og færa verkefni þess undir önnur verkefni . Þetta kom fram á fundi borgarstjórnar í dag.Borgarfulltrúar Miðflokksins lögðu fram tillögu um að ráðið yrði lagt niður á fundinum.Tillagan var ekki afgreidd, en fulltrúar meirihlutans samþykktu að vísa henni til nýs hagræðingarhóps sem Róbert Ragnarsson, borgarfulltrúi Viðreisnar, leiðir.Hildur staðfesti að stefnt væri að því að leggja ráðið niður, sem og Mannréttindaskrifstofu borgarinnar. Hún sagði að vanda þyrfti til verka og til dæmis komast að niðurstöðu um það hvar í borgarkerfinu lögbundin verkefni ættu best heima.Lögbundin verkefni ráðsins og Mannréttindaskrifstofunnar tengjast meðal annars aðgengismálum og málefnum eldri borgara.Sanna