G7-ríkin ætla að auka þrýsting á Rússa

G7-ríkin ætla að auka þrýsting á Rússa að hverfa frá stríðsrekstri sínum í Úkraínu. Þetta á meðal annars að gera með viðskiptaþvingunum á olíu og gas að því er ónafngreindur franskur embættismaður sagði við AFP-fréttastofuna.Volodymyr Zelensky forseti Úkraínu tók þátt í fundinum í dag og hitti þar meðal annars Donald Trump forseta Bandaríkjanna. Leiðtogarnir komust einnig að þeirri niðurstöðu að staðan á vígvellinum sé hagfelld Úkraínu. Zelensky hafði reyndar sjálfur bent í því samhengi á árásir á olíuhreinsistöðvar í Moskvu-héraði en slíkar árásir hafa meðal annars leitt til þess að olíufélag hefur þurft að skammta olíu. TRUMP SEGIR AÐ RÚSSAR EIGI AÐ SEMJA Zelensky sagði á samfélagsmiðlum eftir að hafa hitt leiðtogana að forgangsatriði Úkraínumanna væru skýr. Meðal þeirra væri að fá fl
G7-ríkin ætla að auka þrýsting á Rússa

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd