Forsvarsmenn Bláa lónsins og Arctic Adventures hafa skrifað undir samkomulag um samruna fyrirtækjanna. Þetta kemur fram í tilkynningu frá félaginu.Jafnframt kemur fram að Bláa lónið hafi hafið formlegan undirbúning að skráningu félagsins á íslenskan hlutabréfamarkað. Landsbankinn og Fossar fjárfestingarbanki eru umsjónaraðilar útboðsins.Samkomulagið er gert með fyrirvara um áreiðanleikakönnun á báðum félögum, samþykki Samkeppniseftirlitsins og samþykki hluthafa.Haft er eftir Sigríði Margréti Oddsdóttir, forstjóra Blá lónsins að kaup á Arctic Adventures séu mikilvægt skref í átt fyrirtækisins.Samanlagðar tekjur félaganna voru 34,3 milljarðar króna í fyrra árið 2025.Í fyrra undirrituðu forsvarsmenn Arctic Adventures og Kynnisferða samkomulag um sameiningu með sömu fyrirvörum. Fyrr í vikunni