Tillögu borgarfulltrúa Samfylkingarinnar um skipan starfshóps til að meta áhrif ESB-aðildar á hagsmuni Reykjavíkurborgar var vísað frá borgarstjórn í dag.Borgarfulltrúar meirihlutans í Reykjavík greiddu allir atkvæði með frávísun, þar með talið fulltrúar Viðreisnar, en flokkurinn hefur öðrum fremur lagt áherslu á ESB-aðild.Í greinargerð með tillögunni segir að opinber umræða um aðild hafi einblínt á áhrif á atvinnuvegi á borð við sjávarútveg og landbúnað. Samantekt vanti á áhrifum á rekstur, efnahag og fjárfestingargetu borgarinnar.Frá fyrsta fundi borgarstjórnar eftir kosningar.RÚV / Ragnar Visage