Hvers vegna spila svona margir í bleikum takkaskóm á HM?

Dyggir aðdáendur heimsmeistaramótsins í knattspyrnu hafa eflaust tekið eftir því hversu margir leikmenn mótsins spila í bleikum takkaskóm en skóframleiðendurnir Nike, Adidas, Puma, New Balance og Sketchers hafa allir útvegað leikmönnum ólíkar tegundir af bleikum takkaskóm í sérstökum útgáfum fyrir heimsmeistaramótið.Í samtali við The New York Times segir Ben Warren, stofnandi breska fyrirtækisins BW Boots UK, sem sérhæfir sig í sjaldgæfum og klassískum takkaskóm, að algengi bleika litarins á mótinu í ár sé langt frá því að vera tilviljun.Hann segir ólík vörumerki framleiða skó sem séu meira og minna í sömu litum. Undanfarin ár hafi tíðkast að takkaskór beri svipað yfirbragð en í ár séu skórnir nánast nákvæmlega eins á litinn. SKÆRIR LITIR GEFI AUKIÐ SJÁLFSTRAUST Odinga Nimako, yfirmaður
Hvers vegna spila svona margir í bleikum takkaskóm á HM?

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd