Þrír sakborningar í Gufunesmálinu hafa óskað eftir áfrýjunarleyfi til Hæstaréttar. Mbl.is greindi fyrst frá.Sakborningarnir eru Stefán Blackburn og Lúkas Geir Ingvarsson, sem hlutu báðir sextán ára dóm fyrir manndráp, og kona sem hlaut sex mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir hlutdeild í frelsissviptingu.Landsréttur mildaði dóm Stefáns og Lúkasar, en þeir höfðu báðir hlotið 17 ár í héraði. Konan hafði hins vegar verið sýknuð í héraði.Fjórði sakborningurinn í málinu er Matthías Björn Erlingsson, sem hlaut tólf ára dóm. Verjandi hans staðfestir við mbl.is að dóminum verði ekki áfrýjað.Lúkas Geir Ingvarsson við fyrirtöku í Landsrétti.RÚV / Ragnar Visage