EFTA-dómstóllinn hefur komist að þeirri niðurstöðu að íslenska ríkið uppfylli ekki skyldur sínar gagnvart Evrópureglugerðum með því að tryggja ekki að starfsmenn Flugöryggisstofnunar Evrópu (EASA) geti flutt uppsafnaðan lífeyri sinn frá íslenskum lífeyrissjóði til lífeyrissjóðs starfsmanna ESB.EFTA-dómstóllinn taldi að reglugerð Evrópusambandsins um Flugöryggisstofnunina, nánar tiltekið 29. gr. hennar, veitti starfsmönnum hennar þennan rétt. Í greininni er kveðið á um að sömu reglur gildi um starfsmenn stofnunarinnar og um starfsmenn stofnana Evrópusambandsins.Því væri sú framkvæmd Lífeyrissjóðs starfsmanna ríkisins að meina starfsmönnum stofnunarinnar að flytja réttindi sín þangað brot á EES-samningnum.